Nýjast

Endurteknar blöðrubólgur

Posted: 29. október 2017

Síendurteknar bakteríusýkingar í þvagblöðru er nokkuð algengt vandamál hjá konum. Einkenni blöðrubólgu eru óþægindi við þvaglát, t.d. sviði í þvagrás en einnig tíð og bráð þvaglát. Þá getur þvag verið illa lyktandi og gruggugt. Þvagfærasýking er greind með þvagprufu. Sjúklingur verður sér úti um þvagprufuglas í apóteki og skilar svokölluðu miðbunuþvagi á rannsóknarstofu eftir að […]

Þvagleki

Posted: 5. október 2017

Þvagleki á sér stað þegar einstaklingurinn nær ekki að halda í sér þvagi. Vandamálið er algengt og veldur oft mikilli vanlíðan og óþægindum. Þvagleki er gjarnan flokkaður í nokkrar mismunandi tegundir: Áreynsluleki. Sjúklingur missir þvag við áreynslu, t.d. hósta eða hnerra, þegar hann hoppar eða hleypur. Við þetta eykst þrýstingur á blöðruna og þvag lekur […]

Boginn limur (Peyronie´s)

Posted: 4. október 2017

Peyronie´s sjúkdómur er kvilli sem leggst á getnarliminn og getur valdið bognun hans. Örvefsskellur myndast í bandvefsslíðrinu sem umlykur stinningarhólf limsins og geta valdið staðbundnum samdrætti og þarafleiðandi bognun limsins. Ástæður þessa eru ókunnar en einhvers konar áverki á liminn er gjarnan nefndur til sögunnar jafnvel þótt menn muni sjaldnast eftir slíku. Ekki er alltaf […]

Stinningarvandamál

Posted: 2. október 2017

Þegar stinning getnaðarlims er skert þannig að það hamli mönnum í kynlífi er talað um risvandamál. Slík vandamál eru nokkuð algeng, sumar rannsóknir hafa m.a.s. bent til að u.þ.b. 50% af karlmönnum eldri en 40 ára glími við þau að einhverju leyti. Orsakir slíkra vandamála geta verið ýmiss konar en er í grófum dráttum skipt […]

Krabbamein í blöðruhálskirtli

Posted: 19. ágúst 2016

Samkvæmt krabbameinsskrá er blöðruhálskirtilskrabbamein algengasta krabbameinið hjá íslenskum körlum og um þriðjungur nýgreindra krabbameina á Íslandi. Blöðruhálskirtillinn er staðsettur neðan við þvagblöðruna hjá körlum og hefur hlutverki að gegna við framleiðslu sæðisvökvans. Illkynja vöxtur krabbameinsins hefst í kirtlinum sjálfum en getur – ef það nær að þroskast nægjanlega lengi – farið að vaxa út fyrir hýði […]